Jæja.. Í dag er konudagurinn, og ég fékk ekki neitt... Jú, hann
einar "gaf" mér blómanælu sem ég á btw.. Svaka heppin hún ég

Hehe...
En svona er þetta ef maður nær sér i órómantískann mann

Fyrsti konudagurinn sem ég á alvöru kærasta, og viti menn.. Ekki
neitt... Engin blóm, eða ekki neitt... Piff smiff...
En ég er búin að gera díl við Einar minn... Ef hann fær ekki
vinnuna sem hann er að sækjast eftir, þá flytjum við vestur næsta
haust

Eða svo segir hann núna, sjáum hvað hann segir næsta
haust, hvort hann fylgi þessu eftir eða hvað... Daddada damm....
Ég verð að fá smá upprifjun á því hvað er djamm??? Ég hef ekki
farið á það svo lengi að ég varla veit hvað það er

Obbobobb...
Edilega segja mér... Eða koma memmér á djammið þegar ég á ammli...
Sem er bara days away...
Eeeennnn... Ég segi bara adios í bili
P.s. mamma er í heimsókn hjá okkur, og ég hef aldrei séð
þvottahúsið mitt með svona litlum óhreinum þvotti... Hún er að
afsanna kenningu mína um það að þvottavélin mín sé of lítil til að
hægt sé að ná þvottinum niður...